Samsetta lausnin inniheldur
- 1 stk. D080 Teitur
- 1 stk. DF054 Stauraskór 95 Xtra HG
- 1 stk. DF021 Bolti M16x50 8.8 HG 934 + Spenniskinna M16 HG og Skinna M16 HG
- 2 stk. DF028 Bolti M10x110 HG. og Ró
Teitur
Teitur er öflugur stólpi sem hentar vel til að grafa niður sem undirstaða undir grindverk. Gríðarleg mikil jarðvegsfesta sem nær 600 kg togþyngd.
Hönnun stólpans gerir það að verkum að ef hann er grafinn niður og þjappað að honum þá þarf margfaldaða þyngd til að toga hann upp aftur.
Stólpinn er 65 kg en togþyngdin er 600 kg þegar hann er grafinn niður.
Teitur er framleiddur úr C45 (Mpa) steinsteypu.
Öflug 8mm járnagrind er í stólpanum sem tengist við múrhulsuna í toppnum.
Stærðir
- Þyngd 65 kg
- Togþyngd 600 kg
- Hæð 80 cm
- Toppur 15×15 cm
- Botn 30×30 cm
STAURASKÓR 95 XTRA HG
Stauraskórinn er skrúfaður fastur ofan á Dvergana með bolta M16x50 og staurinn festur með bolta M10x110.
Í botni skósins eru einnig fjögur göt fyrir skrúfur svo auðvelt sé að skrúfa skóinn ofan á timburundirstöður eða trépall.
Stauraskórinn passar vel fyrir 95x95mm tréstaura.