Samsetta lausnin inniheldur
- 1 stk. D060 Purkur
- 1 stk. DF054 Stauraskór 95 Xtra HG
- 1 stk. DF021 Bolti M16x50 8.8 HG 934 + Spenniskinna M16 HG og Skinna M16 HG
- 2 stk. DF028 Bolti M10x110 HG. og Ró
Purkur
Purkur hentar vel til að grafa niður því það er ótrúleg festa sem hann nær í jarðvegi. Mikil jarðvegsfesta sem nær 300 kg togþyngd.
Hönnun stólpans gerir það að verkum að ef hann er grafinn niður og þjappað að honum þá þarf margfaldaða þyngd til að toga hann upp aftur.
Stólpinn er 50 kg en togþyngdin er 300 kg þegar hann er grafinn niður.
Purkur er framleiddur úr C45 (Mpa) steinsteypu.
Öflug 8mm járnagrind er í stólpanum sem tengist við múrhulsuna í toppnum.
Stærðir
- Þyngd 50 kg
- Togþyngd 300 kg
- Hæð 60 cm
- Toppur 15×15 cm
- Botn 30×30 cm
STAURASKÓR 95 XTRA HG
Stauraskórinn er skrúfaður fastur ofan á Dvergana með bolta M16x50 og staurinn festur með bolta M10x110.
Í botni skósins eru einnig fjögur göt fyrir skrúfur svo auðvelt sé að skrúfa skóinn ofan á timburundirstöður eða trépall.
Stauraskórinn passar vel fyrir 95x95mm tréstaura.