Samsetta lausnin inniheldur
- 1 stk. D030 Álfur
- 1 stk. DF051 Bjálkaskór 45 HG m/ Langró
- 1 stk. DF002 Snittteinn 100 M16 HG m/spori
- 1 stk. DF027 Bolti M10x60 HG. og Ró
Álfur
Álfur er frábær undirstaða þegar þörf er á lágum en sterkum stólpa.
Hönnun stólpans gerir það að verkum að ef hann er grafinn niður og þjappað að honum þá þarf margfaldaða þyngd til að toga hann upp aftur.
Stólpinn er 30 kg en togþyngdin er 70 kg þegar hann er grafinn niður.
Álfur er framleiddur úr C45 (Mpa) steinsteypu.
Öflug 8mm járnagrind er í stólpanum sem tengist við múrhulsuna í toppnum.
Stærðir
- Þyngd 30 kg
- Togþyngd 70 kg
- Hæð 30 cm
- Toppur 15×15 cm
- Botn 30×30 cm
BJÁLKASKÓR 45 HG m/ Langró
Undir botn Bjálkaskósins er soðin 16mm langró sem passar fyrir Snitttein sem skrúfast í topp Dverganna,
þá er hægt að hæða- og stefnustilla Bjálkaskóinn svo hann passi í lárétta stöðu bjálkans sem í hann verður festur.
Langróin bætir enn betur hæðastillingu Bjálkaskósins og auðveldar uppsetningu.
Bjálkinn er svo festur með bolta M10x60.
Á hliðum Bjálkaskósins eru einnig göt fyrir skrúfur.
Bjálkaskórinn passar vel fyrir 45 mm (2″) dregara sem undirstaða undir sóplall.