Álfur
Álfur er frábær undirstaða þegar þörf er á lágum en sterkum stólpa.
Tengistykki
Í toppinn er insteypt 16mm heitgalvanhúðuð múrhulsa til þess að festa tengistykki.
Mikið úrval er til af tengistykkjum og því margskonar not fyrir undirstöðuna.
Hönnun
Hönnun stólpans gerir það að verkum að ef hann er grafinn niður og þjappað að honum þá þarf margfaldaða þyngd til að toga hann upp aftur.
Stólpinn er 30 kg en togþyngdin er 70 kg þegar hann er grafinn niður.
Álfur er framleiddur úr C45 (Mpa) steinsteypu.
Öflug 8mm járnagrind er í stólpanum sem tengist við múrhulsuna í toppnum.
Stærðir
- Þyngd 30 kg
- Togþyngd 70 kg
- Hæð 30 cm
- Toppur 15×15 cm
- Botn 30×30 cm