Álfur Plús+
Álfur Plús+ er frábær undirstaða þegar þörf er á lágum en sterkum stólpa.
Tengistykki
Í toppinn er insteypt 16mm heitgalvanhúðuð múrhulsa til þess að festa tengistykki.
Mikið úrval er til af tengistykkjum og því margskonar not fyrir undirstöðuna.
Hönnun
Hönnun stólpans gerir það að verkum að ef hann er grafinn niður og þjappað að honum þá þarf margfaldaða þyngd til að toga hann upp aftur.
Stólpinn er 80 kg en togþyngdin er 300 kg þegar hann er grafinn niður.
Álfur Plús+ er framleiddur úr C45 (Mpa) steinsteypu.
Öflug 8mm járnagrind er í stólpanum sem tengist við múrhulsuna í toppnum.
Stærðir
- Þyngd 80 kg
- Togþyngd 300 kg
- Hæð 40 cm
- Toppur 15×15 cm
- Mittismál 30×30 cm
- Botn 50×50 cm